Hvað er aldursstjórnun?

HR Manager

2: Heilsusamlegt vinnuumhverfi fyrir alla aldurshópa

Hvað er aldursstjórnun?

Aldursstjórnun leggur áherslu á að tekið sé tillit til aldurs við daglega stjórnun, þar á meðal vinnuskipulag og verkefni einstakra starfsmanna svo allir, óháð aldri, geti náð eigin markmiðum og markmiðum fyrirtækisins. Aldurstjórnun á einnig við um allsherjarstefnumótun stjórnvalda varðandi eldra starfsfólk í kjarasamningum og vinnumarkaðsmálum almennt.

Helstu þættir aldursstjórnunar eru:  

  • Áhersla á forvarnir frekar en að bregðast við þegar í óefni er komið;
  • Áhersla á alla starfsævina og alla aldurshópa, ekki aðeins eldri starfsmenn; og
  • Heildræn nálgun sem nær yfir alla þá þætti sem stuðla að skilvirkri aldursstjórnun. 

(Heimildir)

er mannauðsstjórnun sem leggur sérstaka áherslu á þarfir eldra starfsfólks. Aldurstjórnun er heildræn, fer þvert á kynslóðir og tekur mið af lífshlaupi hvers og eins.

Kostir aldursstjórnunar

Virk mannauðsstjórnun þar sem vinnuafl er aldursdreift gagnast bæði starfsfólki og vinnustaðnum. Kostir aldursstjórnunar fyrir starfsfólk eru m.a.:

  • Aukin starfstengd hvatning;
  • Aukin starfsánægja;
  • Bætt jafnvægi milli vinnu og einkalífs;
  • Aukin framleiðni allra aldurshópa; og
  • Full

    Lýsa má starfsgetu sem jafnvæginu á milli líkamlegrar og andlegrar getu starfsmanns og starfstengdra krafna. Einkalífið hefur einnig áhrif á starfsgetu. Einstaklingsbundnir eiginleikar skiptast í eftirfarandi þætti: (1) heilsu og starfshæfi; (2) hæfni og færni; (3) gildi, viðhorf og áhugahvöt. Vinnutengdir þættir eru eðli starfsins, vinnuumhverfið, vinnuskipulagið og stjórnun á vinnustaðnum. (Heimildir)

    og

    Ráðningarhæfni er samspil þátta sem gera viðkomandi kleift að „fá vinnu, halda henni og fá framgang í starfi“.

    alla starfsævina. 

Þeir kostir og tækifæri sem

Aldursstjórnun leggur áherslu á að tekið sé tillit til aldurs við daglega stjórnun, þar á meðal vinnuskipulag og verkefni einstakra starfsmanna svo allir, óháð aldri, geti náð eigin markmiðum og markmiðum fyrirtækisins. Aldurstjórnun á einnig við um allsherjarstefnumótun stjórnvalda varðandi eldra starfsfólk í kjarasamningum og vinnumarkaðsmálum almennt.

Helstu þættir aldursstjórnunar eru:  

  • Áhersla á forvarnir frekar en að bregðast við þegar í óefni er komið;
  • Áhersla á alla starfsævina og alla aldurshópa, ekki aðeins eldri starfsmenn; og
  • Heildræn nálgun sem nær yfir alla þá þætti sem stuðla að skilvirkri aldursstjórnun. 

(Heimildir)

hefur í för með sér fyrir stofnanir og fyrirtæki eru:   
  • Að nægt vinnuafl er tryggt og gerðar eru ráðstafanir vegna yfirvofandi skorts á færni/starfsfólki;
  • Að komið er í veg fyrir kostnaðarsamt tap á færni og reynslu;
  • Minni starfsmannavelta og sparnaður vegna færri ráðninga;
  • Farsæl yfirfærsla á þekkingu til eftirmanna áður en farið er á eftirlaun; og
  • Styrkur og hæfileikar allra aldurshópa eru nýttir til fulls, þ. á m. tengslanet, sérfræðiþekking og reynsla eldri starfsmanna.

Ólíkir fletir aldursstjórnunar

Myndin hér að neðan sýnir ýmsa þætti aldursstjórnunar. Hér að neðan er stutt lýsing á þessum þáttum auk tengla þar sem finna má nánari upplýsingar.

  • Ráðning: Ráðningarferlar sem leggja áherslu á færni og reynslu, forðast aldursmismunun og stuðla að aldursdreifingu. Lesa meira.
  • Þekkingaryfirfærsla, þjálfun og

    Símenntun er öll sú menntun, jafnt formleg sem óformleg, sem fólk aflar sér á ævinni. Símenntun er spannar vítt svið -  nám af öllu tagi, sveigjanlegt, fjölbreytt og í boði á mismunandi stað og tíma.  Símenntun stuðlar að aukinni þekkingu og færni sem er forsenda ánægju í starfi og lífsfyllingar almennt. (Heimildir)

    :
    Starfsmenn á öllum aldri skulu eiga kost á þjálfun og geta uppfært þekkingu sína og færni. Þetta er sérlega mikilvægt þegar starfsvenjum er breytt eða ný tækni innleidd. Lesa meira.
  • Starfsþróun: Starfsþróun á að vera í fyrirrúmi alla starfsævina - til að tryggja að færni og geta starfsmannsins nýtist ávallt í starfi. Lesa meira.
  • Sveigjanlegur vinnutími: Sveigjanlegur vinnutími verður að taka mið af ólíkum þörfum allra aldurshópa og bæta jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Lesa meira.
  • Heilsuefling á vinnustað: Bætir skipulag og starfsumhverfi, eflir persónulega færni starfsfólks og starfsþróun og hvetur það til þátttöku. Lesa meira.  
  • Öryggi og heilbrigði á vinnustað: Aldurstengt áhættumat og aðlögun á vinnustað til að tryggja öryggi og heilbrigði stafsfólks á öllum aldri. Lesa meira.
  • Starfsskipti: Vinnufyrirkomulag þar sem starfsfólk flyst skipulega milli tveggja eða fleiri starfa. Lesa meira.
  • Starfslok og umskiptin frá vinnu til starfsloka: Stuðningur við skipulagningu starfsloka. Lesa meira.

Hver er aldurssamsetning vinnuaflsins?

Atvinnurekendur geta nýtt aldursgreiningu til að fylgjast með aldurssamsetningu vinnuafls síns. Þekking á aldurssamsetningu nú nýtist við stefnumótun í mannauðsmálum til framtíðar. Slík mannauðsstefna ætti að tryggja jafnvægi í aldurssamsetningu og kveða á um leiðir til að viðhalda starfsgetu og

Ráðningarhæfni er samspil þátta sem gera viðkomandi kleift að „fá vinnu, halda henni og fá framgang í starfi“.

starfsmanna í öllum aldurshópum til langframa.  Þetta stuðlar að samkeppnishæfni fyrirtækisins. 

Túlka verður niðurstöður greiningarinnar með hliðsjón af starfseminni og kröfum  hennar og mannauðs- og vinnuverndarstefnu fyrirtækisins. Greining á aldurssamsetningu gagnast einnig í ráðningarferlum, við val á eftirmönnum þegar eldri starfsmenn fara á eftirlaun og til að stuðla að þekkingarmiðlun. 

Hæfnimat er nýtt í frammistöðustjórnun og starfsþróun. Færni og hæfni starfsfólks er metin til að greina hvar skórinn kreppir og á grundvelli matsins er ákveðið hvers kyns þjálfunar og færniþróunar er þörf.

Mikilvægi samvinnu

Heildræn nálgun á

Aldursstjórnun leggur áherslu á að tekið sé tillit til aldurs við daglega stjórnun, þar á meðal vinnuskipulag og verkefni einstakra starfsmanna svo allir, óháð aldri, geti náð eigin markmiðum og markmiðum fyrirtækisins. Aldurstjórnun á einnig við um allsherjarstefnumótun stjórnvalda varðandi eldra starfsfólk í kjarasamningum og vinnumarkaðsmálum almennt.

Helstu þættir aldursstjórnunar eru:  

  • Áhersla á forvarnir frekar en að bregðast við þegar í óefni er komið;
  • Áhersla á alla starfsævina og alla aldurshópa, ekki aðeins eldri starfsmenn; og
  • Heildræn nálgun sem nær yfir alla þá þætti sem stuðla að skilvirkri aldursstjórnun. 

(Heimildir)

krefst samvinnu fjölda aðila, þ. á m. þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu á vinnustaðnum, starfsfólks og fulltrúa þeirra og stjórnenda. Samvinna vinnuverndarsérfræðinga og mannauðsstjóra er sérlega mikilvæg því mannauðsstefna sem stuðlar að jafnvægi milli vinnu og einkalífs, heilnæmum vinnutíma og starfsþróun hefur bein áhrif á öryggi og heilbrigði á vinnustað, einkum og sér í lagi hið sálfélagslega vinnuumhverfi.

Lestu meira (vinnuverndarhluti) um tengsl vinnuverndar og aldursstjórnunar. 

Dæmi um fyrirmyndarverkefni