Hvað er heilsuefling á vinnustað?
Atvinnurekendum ber samkvæmt lögum að tryggja öryggi og heilbrigði á vinnustað (sjá þema 2). Samkvæmt vinnuverndarlögum nr. 46/1980 ber atvinnurekendum skylda til að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum og skal hún marka stefnu um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi. Þessi áætlun skal fela í sér sérstakt áhættumat og áætlun um heilsuvernd og forvarnir. Áætlunin skal fela í sér að gerðar séu úrbætur í samræmi við niðurstöður áhættumatsins sem og eftirfylgni að úrbótum loknum. Heilsuefling á vinnustað er ekki lagaleg skylda en margir atvinnurekendur kjósa að ganga lengra en lögin kveða á um og efla heilsu starfsmanna sinna með ýmsum ráðum því þeir telja að slíkt skili sér í ánægðara og heilbrigðara starfsfólki sem vinni vel. Heilsuefling á vinnustað tekur þannig á ýmsum þáttum sem falla ekki endilega beint undir vinnuverndarlöggjöf.
Evrópska samstarfsnefndin um heilsueflingu á vinnustöðum hefur skilgreint heilsueflingu á vinnustöðum sem sameiginlegt verkefni vinnuveitenda, starfsmanna og samfélagsins alls sem miðar að því að bæta heilsu og líðan vinnandi fólks. Með heilsueflingu á vinnustöðum er stefnt að því að bæta vinnuskipulag og vinnuumhverfi, hvetja til virkrar þátttöku og stuðla að stöðugum þroska einstaklingsins. Heilsueflingu á vinnustöðum er
ætlað að efla mannauð vinnustaða með bættri heilsu og líðan.
Heilsuefling á vinnustað tekur m.a. til:
- Heilbrigðisfræðslu og þjálfunar;
- Jafnvægis milli vinnu og einkalífs (félagsleg tengsl, velferð fjölskyldunnar, hvernig ferðast er til og frá vinnu);
- Streitu og andlegrar líðanar; og
- Lífsstíls (næring, líkamsrækt, reykingar og áfengisneysla).
Hlutverk vinnuveitanda
Hvort heilsueflandi aðgerðir skila árangri veltur að miklu leyti á vinnuveitandanum. Hann getur stuðlað að heilsueflingu með því að:
- Styðja áætlun um heilsueflingu af heilum hug og taka fullan þátt í heilsueflandi aðgerðum;
- Gera áætlun um heilsueflingu að órjúfanlegum þætti stefnumótunar og vinnuferla; og
- Hvetja til virkrar þátttöku starfsmanna við skipulagningu og framkvæmd áætlunar vinnustaðarins um heilsueflingu.
Samþætting vinnuverndar og heilsueflingar á vinnustað
Áður fyrr litu menn á vinnuvernd og heilsueflingu á vinnustað sem tvö ólík svið og töldu að heilsuefling á vinnustað fælist einkum í aðgerðum til að stuðla að heilbrigðum lífsstíl starfsfólks. Í dag spannar heilsuefling á vinnustað mun víðara svið sem tekur til ýmissa vinnuverndarmála, s.s. vinnuskipulags, og andlegrar og líkamlegrar heilsu.
Rannsóknir sýna að heildstæð stefna og framkvæmd sem tekur bæði á vinnuumhverfinu (vinnuvistfræðilegum þáttum og vinnuskipulagi) og einstaklingsbundinni heilsufarsáhættu starfsfólks er árangursríkt tæki til að koma í veg fyrir sjúkdóma og bæta hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.