Ávinningur af heilsueflandi vinnustöðum
Heilsusamlegt vinnuumhverfi, þar sem heilsuefling eykur þekkingu og getu starfsfólks til að hafa áhrif á eigin heilsu, skila ávinningi fyrir hvort tveggja starfsfólkið og atvinnurekandann. Heilsuefling hefur marga kosti í för með sér fyrir vinnustaðinn, t.d.:
- Bætta heilsu og vellíðan starfsfólks;
- Minni fjarvistir og minni starfsmannaveltu;
- Minni kostnað við heilbrigðisþjónustu og tryggingar;
- Styrkari ráðningarsambönd;
- Bættan starfsanda og betra andrúmsloft á vinnustað;
- Meiri framleiðni og aukin afköst; og
- Betri ímynd fyrirtækis eða stofnunar.
Hér (mannauðshluti) er að finna nánari upplýsingar um hvað þarf til að áætlun um heilsueflingu á vinnustað skili árangri.
Hér að neðan er að finna dæmi um áætlanir nokkurra fyrirtækja og stofnana um heilsueflingu á vinnustað.