Ávinningur af heilsueflandi vinnustöðum

HR Manager

3: Heilsueflandi vinnustaðir

Ávinningur af heilsueflandi vinnustöðum

Heilsusamlegt vinnuumhverf, þar sem heilsuefling eykur þekkingu og getu starfsfólks til að hafa áhrif á eigin heilsu, skila ávinningi fyrir hvort tveggja starfsfólkið og atvinnurekandann. Heilsuefling hefur marga kosti í för með sér fyrir  vinnustaðinn, t.d.:

  • Bætta heilsu og vellíðan starfsfólks;
  • Minni fjarvistir og minni starfsmannaveltu;
  • Minni kostnað við heilbrigðisþjónustu og tryggingar;
  • Styrkari ráðningarsambönd;
  • Bættan starfsanda og betra andrúmsloft á vinnustað;
  • Meiri framleiðni og aukin afköst; og
  • Betri ímynd fyrirtækis eða stofnunar.

Ávinningur af heilsueflingu fyrir starfsfólk er: 

  • Bætt heilsa og vellíðan;
  • Aukin starfsánægja;
  • Minni streita og betri tæki til að glíma við streitu; og
  • Betri þekking á heilsuvernd og aukin geta til að hlúa að heilsunni. 

Í næsta kafla er að finna nánari upplýsingar um hvað þarf til að áætlun um heilsueflingu á vinnustað skili árangri.