My Chemical Guide - quick start
Þegar þú hefur svarað spurningunum sjö geturðu valið að halda áfram með lengri spurningalistann. Það gefur nákvæmari greiningu á reglunum sem eiga við um viðkomandi efni og hættuleg efni. Þú færð einnig ábendingar og ráðgjöf sem er sérsniðin að fyrirtæki þínu um verkferla við örugga meðhöndlun efna og góð vinnubrögð.
Spurningar
- 1. Veistu hvaða hættur vegna hættulegra efna gætu verið til staðar á vinnustöðum þínum og hefurðu skrásett hætturnar?
- 2. Hættumerki - ef þú ert með vörur með þessum merkingum, veit starfsfólkið hvað þær tákna?
- 3. Ertu með lista yfir efni í notkun eða sem eru geymd í fyrirtækinu?“
- 4. Notar þú og skilur öryggisblöðin?
- 5. Myndast hættuleg efni við einhverja vinnslu í fyrirtæki þínu?
- 6. Er starfsfólkið meðvitað um hættuna sem stafar af efnum, veit það hvernig það getur unnið á öruggan hátt og hvernig það getur verndað sig?
- 7. Hefur eitthvað af starfsfólki þínu kvartað yfir heilsubresti eða verið veikt vegna útsetningar fyrir hættulegum efnum sem eru til staðar eða notuð í rekstri þínum?