1: Öldrun og vinna

1
Öldrun og vinna
 

Hvers vegna skiptir öldrun vinnuafls máli fyrir vinnuveitendur?

Öldrun Evrópubúa

Íbúar ESB hafa verið að eldast síðustu áratugina. Þetta er þróun sem á eftir að halda áfram. Grafið hér að neðan sýnir hvernig meðalaldur fólks hefur hækkað töluvert síðustu áratugina og hvernig áætlað er að hann haldi áfram að hækka.

Miðgildi aldurs: Miðgildi í ESB frá 1960 til 2060

Öldrun íbúanna helst í hendur við öldrun vinnuaflsins. Færra ungt fólk kemur inn á vinnumarkaðinn en hlutfall eldra fólks (á 55-64 ára)af vinnuafli fer vaxandi.

Aldursamsetning vinnuafls (1990-2060)

Lykiláskoranir

Þær lýðfræðilegu breytingar sem lýst er að ofan skapa áskoranir fyrir atvinnurekendur, sem felast m.a. í að: 

  • Laða til sín ungt starfsfólk sem fer fækkandi á vinnumarkaði;
  • Halda í reynt eldra starfsfólk – sem fer fjölgandi;
  • Aðlaga vinnustaði til að trygga framleiðni; og
  • Viðhalda og uppfæra alhliða þekkingar- og hæfnigrunn sinn.

Kostir aldursdreifðs vinnuafls

Aldursdreift vinnuafl hefur marga kosti en felur einnig í sér áskoranir, þar með talið að:

  • Aldursdreift vinnuafl gerir stofnunum og fyrirtækjum kleift að laga sig að ólíkum þörfum og kröfum viðskiptavina á öllum aldri; 
  • Starfsfólk á öllum aldri og af báðum kynjum hefur fjölbreytt sjónarmið og hæfileika sem styrkja vinnustaðinn;
  • Fjölbreytileiki á vinnustað eykur sköpunarkraft og nýsköpun, auðveldar lausn vandamála og skapar grundvöll fyrir þekkingarmiðlun milli kynslóða; 
  • Stofnanir og fyrirtæki með aldursdreift vinnuafl geta brugðist hraðar við breyttum aðstæðum því starfsfólkið hefur fjölbreyttari hæfni en þar sem vinnuaflið er allt á sama aldri; og
  • Aldursdreift vinnuafl bætir heildarafköst og gerir stofnunum og fyrirtækjum kleift að fást við síbreytileg hlutverk og verkefni.

Mannauðsstjórnun þegar starfsfólk er á öllum aldri

Vinnustaðir eru aldursdreifðari en nokkru sinni fyrr.  Starfsfólk er gjarnan á ólíkum aldri, með ólíka reynslu, sjónarmið, gildi og hugmyndir og mismunandi þarfir og væntingar. Rannsóknir sýna að hópar fólks á sama aldri þróa með sér sameiginlega eiginleika, byggða á sameiginlegri reynslu. 

Þekking á kynslóðamun og bættur skilningur á öldrun og þeim breytingum sem henni fylgja auðveldar stjórnendum að fullnýta styrkleika og hæfileika starfsfólks á öllum aldri. Enn fremur er brýnt að stjórnendur sýni öllum aldurshópum virðingu og veiti þeim viðurkenningu og þakkir í starfi.

Virk aldursstjórnun er nauðsynleg til að nýta styrk aldursdreifðs vinnuafls til fulls. Slík nálgun gæti kallað á stefnubreytingar í mannauðsmálum. Vinnuveitendur sem gera sér ekki grein fyrir áhrifum öldrunar starfsfólks og þörfinni fyrir að bregðast við henni, stofna framleiðni og samkeppnishæfni fyrirtækisins í hættu.

Lestu meira um stjórnun aldursdreifðra vinnustaða (þema 2)

Hvað þurfum við að vita um öldrun? (Næsti kafli)